Skip to main content
Atburður
- Vatn flæðir um byggingu eða byggingar.
Mat á aðstæðum
- Regn eða leysingavatn.
- Flóð frá bilaðri vatnsveitulögn.
- Brostin eða biluð vatnslögn innandyra.
- Heitt vatn.
- Kalt vatn.
Fyrstu viðbrögð
- Finna uppruna lekans.
- Stöðva lekann, skrúfa fyrir vatnsrennsli ef mögulegt er.
Stig viðbragða
- Innanhússviðbrögð.
- Utanaðkomandi aðstoð slökkviliðs.
- Aukaaðstoð verktaka.
Hlutverk
Fyrstur á staðinn
- Kannar uppruna vatns:
- Innanfrá – skrúfar fyrir (hvar er loka?).
- Utanfrá – hringir í Veitur.
- Hringir í 112 og biður um aðstoð slökkviliðs.
- Slökkvilið sendir mann til að meta aðstæður.
- Hringir í deildarstjóra fasteignaumsjónar (staðgenglar í röð: rekstrarstjóri fasteigna → byggingastjóri → sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs).
Deildarstjóri fasteignaumsjónar
- Kemur á staðinn og tekur stjórnina.
- Kallar út mannskap eftir þörfum.
- Gefur skýrslu til rekstrarstjóra fasteigna (staðgengill: verkefnastjóri öryggismála).
- Gefur skýrslu til byggingastjóra (staðgengill: tengiliður við byggingadeild).
- Gefur skýrslu til sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs (staðgengill: framkvæmdastjóri miðlægrar stjórnsýslu).
Rekstrarstjóri fasteigna
- Er í sambandi við vettvang, safnar upplýsingum og miðlar þeim.
- Sendir upplýsingar á póstlista neyðarstjórnar jafnóðum og þær berast.
- Er til taks til að hringja út mannskap eða í öryggisfyrirtæki.
- Ef sérrými er í húsi: hringir í ábyrgðarmenn.
Aðrir
- Ábyrgðarmenn sérrýma: Kallaðir út ef vatnsflóð er í sérrými.
- Byggingastjóri:
- Kemur á staðinn, tekur stjórn verkefna í samráði við stjórnendur.
- Kallar út iðnaðarmenn eftir þörfum.
- Fulltrúi Upplýsingatæknisviðs:
- Er látinn vita.
- Metur hvort tölvukerfi séu í hættu.
- Sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs:
- Kemur á staðinn og tekur stjórn í samráði við aðra stjórnendur.
- Hringir í rektor.
- Hringir í framkvæmdastjóra miðlægrar stjórnsýslu.
- Virkjar viðbragðsáætlun.
Samskipti
Innan viðbragðs
- Símar starfsmanna.
- Tölvupóstur.
Annað
- Önnur samskipti samkvæmt viðbragðsáætlun.