Skip to main content
Atburður
- Slys eða áfall á háskólasvæðinu, t.d.:
- Umferðarslys, hjartaáfall, aðsvif o.s.frv.
- Hlutverk starfsmanna er að aðstoða viðbragðsaðila með upplýsingum og aðgangi að húsnæði/húskerfum eftir þörfum.
Mat á aðstæðum
- Fjöldi slasaðra.
- Alvarleiki áverka.
- Hætta fyrir þá sem koma að.
Fyrstu viðbrögð
- Hringja í neyðarlínu (112).
- Veita skyndihjálp.
Mismunandi stig viðbragða
- Ræðst af fjölda slasaðra.
- Umferðarslys kallar á sérstakt viðbragð.
Hlutverk
Sá fyrsti sem kemur að slysi
- Hringir í neyðarlínu.
- Neyðarlína sendir skuggaboð til öryggisnefndar og framkvæmda- og tæknisviðs sem senda mannskap til aðstoðar.
- Metur aðstæður og veitir skyndihjálp.
- Kallar nærstadda til aðstoðar ef mögulegt er.
- Stýrir aðgerðum þar til viðbragðsaðilar taka við.
Umsjónarmaður
- Kemur á staðinn.
- Metur aðstæður og veitir aðstoð.
- Vettvangi er stjórnað af viðbragðsaðilum.
- Gefur deildarstjóra reksturs fasteigna skýrslu.
Deildarstjóri fasteignaumsjónar
- Fær skuggaboð.
- Kemur á staðinn ef þörf er á.
- Vettvangi er stjórnað af viðbragðsaðilum.
- Kallar til umsjónarmenn eftir þörfum.
Verkefnastjóri öryggismála
- Fær skuggaboð og skráir þau.
- Safnar gögnum og stýrir endurmati.
Samskipti
- Skuggaboð: SMS skilaboð frá neyðarlínu þegar sjúkra- eða slökkvilið eru kölluð á háskólasvæðið. Nokkrir starfsmenn og öryggisfyrirtæki fá boðin.
- Ekki senda út tilkynningar nema atburður hafi áhrif á starfsemi í byggingu. Gæta skal persónuverndar.
- Ef um vinnuslys er að ræða skráir hinn slasaði eða starfsfólk hans deildar slysið í slysaskráningarform á öryggisvef.
- Verkefnastjóri öryggismála skráir skuggaboð og tengir við slysaskráningu ef þörf er á.