Atburður
- Þar sem einn eða fleiri slasast eða ferðin stöðvast vegna atviks.
- Árekstur, festa, bilun o.s.frv.
- Atvik þar sem líklegt er að kalla þurfi eftir aðstoð björgunarsveita.
- Starfsfólk á vettvangi tekur þátt í viðbragði; starfsfólk utan vettvangs styður með öflun og miðlun upplýsinga.
- Skuggaboð eru ekki send.
Mat á aðstæðum
- Fer fram á vettvangi.
Fyrstu viðbrögð
- Þeir sem eru á vettvangi bregðast strax við samkvæmt aðstæðum.
Mismunandi stig viðbragða
- Ræðst af eðli atviks og leiðbeiningum viðbragðsaðila.
Hlutverk
Hlutverk í viðbragði eru nokkur og mismunandi. Mikilvægt: sá sem er ekki á vettvangi stjórnar ekki aðgerðum.
0. Fyrsti
- Stjórnandi eða starfsmaður á vettvangi sem verður áskynja um slys eða atvik sem þarf að bregðast við.
- Hringir í neyðarlínu (112).
- Tekur fyrstu skref viðbragðs og ræsir fyrsta stjórnanda samkvæmt aðgerðaáætlun viðkomandi stofnunar/deildar/sviðs.
- Stýrir aðgerðum þar til viðbragðsaðilar koma á staðinn.
1. Fyrsti stjórnandi
- Tilnefndur samkvæmt viðbragðsáætlun viðkomandi stofnunar/deildar/sviðs.
- Ræsir annan stjórnanda.
- Hringir út lið eftir þörfum og í samráði við annan stjórnanda.
- Stýrir aðgerðum í samráði við annan og þriðja stjórnanda og viðbragðsaðila.
2. Annar stjórnandi
- Er ekki á vettvangi.
- Er samskiptastjóri aðgerða:
- Sendir tilkynningar til neyðarstjórnar í tölvupósti (samkvæmt viðbragðsáætlun).
- Hringir í hagsmunaaðila innan stofnunar.
- Heldur áfram að senda tilkynningar til neyðarstjórnar eftir því sem upplýsingar berast frá vettvangi.
- Heldur loggskrá um símtöl og ákvarðanir.
- Hringir út liðsauka í samráði við fyrsta stjórnanda (starfsmenn, verktaka o.s.frv.).
- Ræsir þriðja stjórnanda í samráði við fyrsta stjórnanda.
3. Þriðji stjórnandi
- Að jafnaði sviðsstjóri eða sviðsforseti.
- Hringir í rektor og upplýsir um málið:
- Rektor ákveður hvort neyðarstjórn skuli kölluð saman.
- Rektor ákveður hvort senda skuli tilkynningu til fjölmiðla.
- Ef hann kemur á staðinn, vinnur hann í samstarfi við fyrsta stjórnanda.
Verkefnastjóri öryggismála
- Heldur boðunarlista við.
- Safnar gögnum og stýrir endurmati.
Samskipti
Mikilvægt er að miðla upplýsingum til starfsmanna (og nemenda eftir þörfum) til að upplýsa um áhrif á starfsemi og draga úr sögusögnum.
Samskipti innan stofnunar
- Samstilling aðgerða: sími og tölvupóstur.
- Flæði upplýsinga: annar stjórnandi sendir fyrstu skilaboð til neyðarstjórnar:
- Send á póstlista neyðarstjórnar.
- Upplýsingar í fyrstu tilkynningum og fjölmiðlatilkynningum byggja á þessum gögnum.
- Viðbragðsáætlun telst virkjuð.
Samskipti utan stofnunar
- Viðbragðsaðilar: samskipti í gegnum stjórnendur á vettvangi.
- Fjölmiðlar – fyrsta tilkynning: skilgreina hver sendir og hvenær; tilnefna tengilið.
- Þolendur/slasaðir/aðstandendur: samskipti samkvæmt leiðbeiningum lögreglu/viðbragðsaðila.