Vatn

Atburður

  • Vatn flæðir um byggingu eða byggingar.

Mat á aðstæðum

  • Regn eða leysingavatn.
  • Flóð frá bilaðri vatnsveitulögn.
  • Brostin eða biluð vatnslögn innandyra.
  • Heitt vatn.
  • Kalt vatn.

Fyrstu viðbrögð

  • Finna uppruna lekans.
  • Stöðva lekann, skrúfa fyrir vatnsrennsli ef mögulegt er.

Stig viðbragða

  • Innanhússviðbrögð.
  • Utanaðkomandi aðstoð slökkviliðs.
  • Aukaaðstoð verktaka.

Hlutverk

Fyrstur á staðinn

  • Kannar uppruna vatns:
    • Innanfrá – skrúfar fyrir (hvar er loka?).
    • Utanfrá – hringir í Veitur.
  • Hringir í 112 og biður um aðstoð slökkviliðs.
    • Slökkvilið sendir mann til að meta aðstæður.
  • Hringir í deildarstjóra fasteignaumsjónar (staðgenglar í röð: rekstrarstjóri fasteigna → byggingastjóri → sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs).

Deildarstjóri fasteignaumsjónar

  • Kemur á staðinn og tekur stjórnina.
  • Kallar út mannskap eftir þörfum.
  • Gefur skýrslu til rekstrarstjóra fasteigna (staðgengill: verkefnastjóri öryggismála).
  • Gefur skýrslu til byggingastjóra (staðgengill: tengiliður við byggingadeild).
  • Gefur skýrslu til sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs (staðgengill: framkvæmdastjóri miðlægrar stjórnsýslu).

Rekstrarstjóri fasteigna

  • Er í sambandi við vettvang, safnar upplýsingum og miðlar þeim.
  • Sendir upplýsingar á póstlista neyðarstjórnar jafnóðum og þær berast.
  • Er til taks til að hringja út mannskap eða í öryggisfyrirtæki.
  • Ef sérrými er í húsi: hringir í ábyrgðarmenn.

Aðrir

  • Ábyrgðarmenn sérrýma: Kallaðir út ef vatnsflóð er í sérrými.
  • Byggingastjóri:
    • Kemur á staðinn, tekur stjórn verkefna í samráði við stjórnendur.
    • Kallar út iðnaðarmenn eftir þörfum.
  • Fulltrúi Upplýsingatæknisviðs:
    • Er látinn vita.
    • Metur hvort tölvukerfi séu í hættu.
  • Sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs:
    • Kemur á staðinn og tekur stjórn í samráði við aðra stjórnendur.
    • Hringir í rektor.
    • Hringir í framkvæmdastjóra miðlægrar stjórnsýslu.
    • Virkjar viðbragðsáætlun.

Samskipti

Innan viðbragðs

  • Símar starfsmanna.
  • Tölvupóstur.

Annað

  • Önnur samskipti samkvæmt viðbragðsáætlun.