Atburður

  • Eldur er laus í byggingu háskólans

  • Brunaboði fer í gang

    • Rýming hefst

    • Um rýmingu gildir sérstök aðgerðaáætlun

  • Mat á aðstæðum

    • Hve mikill eldur

    • Hve lengi hefur hann logað

    • Er hægt að slökkva eldinn með handslökkvitæki?

  • Fyrstu viðbrögð

    • Reyna að slökkva eldinn með handslökkvitæki.

    • Kalla út slökkvilið

  • Mismunandi stig viðbragðs

    • Innanhússviðbragð

      • Eldur slökktur með handslökkvitæki eða eldvarnateppi.

    • Utanhússviðbragð
      • Slökkvilið kallað til

Hlutverk

  • Umsjónarmaður

    • Kemur á staðinn – metur aðstæður

    • Hefur slökkvistörf ef hann metur aðstæður þannig

    • Hringir í 1-1-2 og biður um aðstoð slökkviliðs ef hann metur aðstæður þannig

    • Hringir í Deildarstjóra reksturs fasteigna og gefur skýrslu

    • Getur hringt í aðra umsjónarmenn til að fá aðstoð.

  • Deildarstjóri reksturs fasteigna

    • Kemur á staðinn – tekur stjórnina

    • Getur kallað út mannskap til aðstoðar eins og hann telur þörf á

    • Aðstoðar slökkvilið eftir föngum

    • Hringir í rekstrarstjóra fasteigna – gefur skýrslu

      • Ef hann svarar ekki: Verkefnastjóra öryggismála

    • Hringir í Deildarstjóra bygginga- og tæknisviðs – gefur skýrslu

      • Ef hann svarar ekki: Tengilið við byggingadeild (?)

    • Hringir í sviðsstjóra Framkvæmda og tæknisviðs – gefur skýrslu

  • Rekstrarstjóri reksturs fasteigna

    • Er í sambandi við vetvang og safnar upplýsingum og deilir þeim út.

    • Miðlar upplýsingum innan viðbragðs

      • Sendir upplýsingar á póstlista neyðarstjórnar jafnóðum og þær berast.

    • Er til taks til að hringja út mannskap

    • Er til taks til að hringja í öryggisfyrirtæki

    • Ef sérrými: hringir í ábyrgðarmann/menn

  • Ábyrgðarmenn rýma

    • Ef eldur er í sérrými eru ábyrgðarmenn kallaðir út til aðstoðar.

      • Upplýsingar um hverjir eru ábyrgðarmenn rýma eru á öryggisvef.

      • Fyrsti eða annar stjórnandi kallar ábyrgðarmenn út eftir því sem við á.

  • Deildarstjóri bygginga- og tæknideildar

    • Kemur á staðinn, tekur stjórn verkefna í samráði við stjórnanda 1 og 3

    • Kallar út iðnaðarmenn eftir þörfum

  • Sviðsstjóri Framkvæmda og tæknisviðs

    • Kemur á staðinn og tekur stjórnina í samráði við Deildarstjóra reksturs fasteigna og Byggingastjóra

    • Hringir í Rektor

    • Hringir í Framkvæmdastjóra miðlægrar stjórnsýslu

    • Viðbragðsáætlun er þarmeð virkjuð

Samskipti

  • Innan viðbragðs

    • Símar starfsmanna

    • Tölvupóstur

  • Önnur samskipti samkvæmt viðbragðsáætlun