Sjúkdómsfaraldur

Atburður

  • Alþjóðastofnanir lýsa yfir sjúkdómsfaraldri.
  • Almannavarnir hækka viðbúnaðarstig í óvissustig.

Mat á aðstæðum

  • Almannavarnir meta aðstæður og gefa út leiðbeiningar.

Fyrstu viðbrögð

  • Þegar almannavarnir lýsa yfir óvissustigi:
    • Rektor kallar neyðarstjórn saman.
    • Rektor skipar vinnuhóp til að uppfæra sértæka viðbragðsáætlun um faraldra.

Mismunandi stig viðbragða

  • Gera þarf ráð fyrir að ástand geti varað um nokkurn tíma.
  • Stig viðbragða miðast við viðbúnaðarstig almannavarna:
    • Óvissustig
    • Hættustig
    • Neyðarstig

Hlutverk

Rektor

  • Fer fyrir viðbrögðum.
  • Kallar neyðarstjórn saman.
  • Beitir stjórnsýslu skólans til að tryggja fumlaus viðbrögð.

Neyðarstjórn

  • Kemur saman að boði rektors.
  • Er rektor til ráðgjafar og stuðnings.
  • Ef þörf krefur eru aðrir kallaðir til:
    • Forsetar fræðasviða.
    • Sviðsstjórar stjórnsýslusviða.
    • Fulltrúar Stúdentaráðs.
    • Aðrir sérfræðingar.

Vinnuhópur rektors um viðbragðsáætlun

  • Uppfærir viðbragðsáætlun Háskóla Íslands vegna faraldra og aðlagar að yfirstandandi aðstæðum.
  • Í hópnum eiga sæti:
    • Formaður öryggisnefndar (formaður hópsins).
    • Fræðimaður með þekkingu á viðkomandi sjúkdómi eða skyldum sjúkdómum.
    • Fulltrúi mannauðssviðs.
    • Fulltrúi framkvæmda- og tæknisviðs.
    • Fulltrúi markaðs- og samskiptasviðs.
    • Verkefnastjóri öryggismála (ritari hópsins).

Verkefnastjóri öryggismála

  • Heldur boðunarlista við.
  • Safnar gögnum og stýrir endurmati.

Samskipti

Mikilvægt er að miðla upplýsingum til starfsmanna (og nemenda eftir þörfum) til að upplýsa um áhrif á starfsemi og draga úr sögusögnum.

Samskipti innan stofnunar

  • Samstilling aðgerða: sími og tölvupóstur.
  • Flæði upplýsinga: annar stjórnandi sendir fyrstu skilaboð til neyðarstjórnar
    • Sent á póstlista neyðarstjórnar.
    • Fyrstu tilkynningar og fjölmiðlatilkynning byggja á þessum gögnum.
    • Viðbragðsáætlun telst virkjuð.

Samskipti utan stofnunar

  • Viðbragðsaðilar: samskipti í gegnum stjórnendur á vettvangi.
  • Fjölmiðlar – fyrsta tilkynning:
    • Skilgreina hver sendir og hvenær.
    • Muna að tilnefna tengilið.
  • Þolendur/slasaðir/aðstandendur: samkvæmt leiðbeiningum almannavarna/lögreglu/viðbragðsaðila.