Atburður
- Innbrot, þjófnaður eða skemmdarverk á byggingum eða innanstokksmunum.
- Atvik sem eru kærð til lögreglu.
Mat á aðstæðum
- Stafar hætta af vettvangi?
- Þarf að gera bráðabirgðalagfæringar á byggingu?
Fyrstu viðbrögð
- Tilkynna til lögreglu.
- Girða svæðið af þar til lögregla hefur lokið störfum á vettvangi.
Mismunandi stig viðbragða
- Lögregla er alltaf kölluð til.
Hlutverk
Sá sem fyrstur verður var við innbrot/þjófnað
- Lætur umsjónarmann hússins vita.
- Gætir þess að vettvangi sé ekki raskað.
- Ekki ætlast til að elta uppi eða handsama geranda.
Umsjónarmaður
- Kemur á staðinn og kannar aðstæður.
- Hringir í lögreglu.
- Gyrðir vettvanginn af og tryggir öryggi þar til lögregla kemur.
- Safnar vitnum.
- Gefur skýrslu til deildarstjóra fasteignaumsjónar eða reksturs fasteigna.
Deildarstjóri fasteignaumsjónar / Rekstrarstjóri reksturs fasteigna
- Kemur á staðinn.
- Sér um samskipti við lögreglu.
- Safnar gögnum úr öryggismyndavélum og afhendir lögreglu.
- Gefur sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs skýrslu.
- Sendir tilkynningu til öryggisnefndar.
- Hefur samband við deildarstjóra bygginga- og tæknideildar.
Deildarstjóri bygginga- og tæknideildar
- Kannar vettvang.
- Kallar til iðnaðarmenn til viðgerða.
Verkefnastjóri öryggismála
- Safnar gögnum og stýrir endurmati.
Samskipti
Mikilvægt er að miðla upplýsingum til starfsmanna um atvik og viðbrögð, bæði til að upplýsa og draga úr líkum á sögusögnum. Meta þarf í hvert skipti hvort senda eigi út tilkynningu og gæta persónuverndar.
Samskipti innan stofnunar
- Fréttir á Uglu.
- Fréttir á ytri vef.
- Tölvupóstur.
Samskipti utan stofnunar
- Samskipti við fjölmiðla (ákveða hver ber ábyrgð).
Samskipti við viðbragðsaðila
- Stjórnendur á vettvangi.
- Deildarstjóri fasteignaumsjónar.