Atburður
Ef hættuástand skapast í byggingu virkjast viðeigandi aðgerðaáætlun.
Rýming hefst þegar brunaviðvörunarbjöllur hljóma.
Almenn rýming
- Fólk stendur upp frá vinnu sinni og klæðist yfirhöfn.
- Stúdentar taka dótið sitt og klæðast yfirhöfn.
- Allir ganga stystu, greiðfærustu leið út og aðstoða aðra ef þörf er á.
- Safnast saman á söfnunarstað.
Hreyfihamlaðir
- Lyftur stöðvast þegar brunaviðvörunarkerfi ræsist.
- Unnið er að skilgreiningu safnsvæða fyrir hreyfihamlaða (óklárað verkefni).
- Stigagangar eru almennt öruggasti biðstaðurinn þar til slökkvilið kemur.
- Mikilvægt er að nærstaddir aðstoði hreyfihamlaða og tilkynni hvar þeir eru.
- Rýmingarfulltrúar og viðbragðsaðilar bregðast við beiðnum um aðstoð.
Hlutverk
Umsjónarmaður
- Kemur á staðinn og leitar uppruna hættu.
- Hringir í aðra umsjónarmenn ef þörf er á.
- Hringir í neyðarlínu (112) ef nauðsyn krefur.
- Slekkur á brunaboðum þegar hætta er liðin hjá.
Allt starfsfólk
- Aðstoðar við rýmingu.
- Sér um eigið svæði.
- Beinir fólki að söfnunarstað.
Kennarar í kennslustund
- Stýra rýmingu kennslustofunnar.
- Leiða stúdenta að söfnunarstað.
- Gera manntal á söfnunarstað.
Samskipti
- Brunaviðvörunarbjöllur = rýming.
- Þögn bjalla = hætta liðin hjá.
- A.m.k. ein rýmingaræfing á ári:
- Upplýst æfing: tilkynnt öllum með tölvupósti.
- Hálfupplýst æfing: tilkynnt rýmingarfulltrúum.
- Óupplýst æfing: framkvæmd án fyrirvara.
- Ef hættuástand dregst á langinn er fólki vísað í aðrar byggingar.
- Starfsfólk og stúdentar skulu kynnast útgönguleiðum byggingarinnar.
- Önnur samskipti samkvæmt viðbragðsáætlun.