Mengunarslys

Atburður

  • Mengandi efni lekur út í umhverfið:
    • Efni sem valda umhverfisspjöllum.
    • Efni sem valda óþef í nágrenni háskólasvæðisins.
    • Efni sem valda óþef og óþægindum í byggingu.

Mat á aðstæðum

  • Magn lekans – 10, 100 eða 1000 lítrar?
  • Hætta fyrir þá sem koma að?
  • Hvaða varnarbúnaður er tiltækur?

Fyrstu viðbrögð

  • Rýma herbergi og lofta út?
  • Rýma bygginguna (samkvæmt sérstakri aðgerðaáætlun)?
  • Stöðva leka.
  • Tilkynna til neyðarlínu.
  • Kalla út ábyrgðarmenn húss eða rannsóknarrýmis.

Mismunandi stig viðbragða

  • Smávægilegur leki sem þarf að hreinsa upp.
  • Efnasprenging sem krefst aðstoðar viðbragðsaðila.
  • Ef rýma þarf byggingu er kveikt á brunaviðvörunarkerfi.

Hlutverk

Sá sem fyrst verður var við mengun

  • Getur verið starfsmaður HÍ eða öryggisfyrirtækis.
  • Hringir í umsjónarmann byggingar eða öryggisfyrirtæki.
  • Hringir í neyðarlínu.
  • Stýrir aðgerðum þar til fyrsti stjórnandi kemur á staðinn.

Umsjónarmaður / starfsmaður öryggisfyrirtækis

  • Á dagvinnutíma: umsjónarmaður – utan dagvinnutíma: öryggisfyrirtæki.
  • Kemur á staðinn og kannar aðstæður.
  • Ræsir deildarstjóra reksturs fasteigna.
  • Tekur fyrstu skref viðbragðs og hringir út deildarstjóra.
  • Kallar út lið eftir þörfum.
  • Stýrir aðgerðum í samráði við deildarstjóra.

Deildarstjóri

  • Deildarstjóri fasteignaumsjónar eða bygginga- og tæknideildar.
  • Kemur á staðinn ef þörf er á.
  • Kallar út umsjónarmenn, iðnaðarmenn og aðra aðstoð eftir þörfum.
  • Kallar út ábyrgðarmenn byggingar/rýma.
  • Hringir í sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs og gefur skýrslu.
  • Gerir atburðinn upp ásamt verkefnastjóra öryggismála.

Deildarstjóri reksturs fasteigna

  • Staðgengill: verkefnastjóri öryggismála.
  • Er ekki á staðnum.
  • Í sambandi við stjórnendur á vettvangi og styður þá:
    • Afla upplýsinga.
    • Senda tölvupósta.
    • Sinna úthringingum.

Ábyrgðarmenn byggingar/rýma

  • Koma á staðinn til aðstoðar.
  • Miðla þekkingu á húsakynnum, efnum og tækjum til viðbragðsaðila.
  • Upplýsingar um ábyrgðarmenn eru á öryggisvef.

Sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs

  • Er upplýstur um málið.
  • Upplýsir rektor.
  • Ákvarðar framhald eftir atvikum.

Verkefnastjóri öryggismála

  • Heldur boðunarlista við.
  • Safnar gögnum og stýrir endurmati.

Samskipti

Mikilvægt er að miðla upplýsingum til starfsmanna um atburði og viðbrögð. Það dregur úr óvissu og sögusögnum.

Samskipti innan stofnunar

  • Samstilling aðgerða: sími og tölvupóstur.
  • Flæði upplýsinga: deildarstjóri reksturs fasteigna sendir fyrstu skilaboð til neyðarstjórnar.
    • Upplýsingar í fyrstu tilkynningum og fjölmiðlatilkynningum byggja á þessum gögnum.
    • Þar með er viðbragðsáætlun virkjuð.

Samskipti utan stofnunar

  • Viðbragðsaðilar: stjórnendur á vettvangi og neyðarstjórn.
  • Fjölmiðlar: samskipti í höndum neyðarstjórnar.
  • Þolendur/slasaðir/aðstandendur: samskipti samkvæmt leiðbeiningum lögreglu/viðbragðsaðila.