Atburður
Slys aða áfall sem verður innan háskólasvæðisins.
Umferðarslys, hjartaáfall, aðsvif af einhverju tagi o.s.frv.
Hlutverk starfsmanna skólans er fyrst og fremst að aðstoða viðbragðsaðila, veita upplýsingar og aðgang að húsnæði eða húskerfum eftir því sem við á.
Mat á aðstæðum
Fjöldi slasaðra
Áverkar
Hætta fyrir þá sem koma að
Fyrstu viðbrögð
Hringja í neyðarlínu
Veita skyndihjálp
Mismunandi stig viðbragðs
Eftir fjölda slasaðra
Umferðarslys
Hlutverk
Sá fyrsti sem kemur að slysi
Hringir í neyðarlínu
Neyðarlína sendir skuggaboð sem berast til öryggisnefndar og framkvæmda og tæknisviðs sem munu senda mannskap til aðstoðar
Metur aðstæður og veitir skyndihjálp.
Kallar nærstadda til aðstoðar ef það er mögulegt.
Stjórnar aðgerðum þar til viðbragðsaðilar koma á vettvang.
Umsjónarmaður
Kemur á staðinn
Metur aðstæður og veitir aðstoð
Vetvangi er stjórnað af viðbragðsaðilum
Hringir í deildarstjóra reksturs fasteigna og gefur skýrslu
Deildarstjóri fasteignaumsjónar
Fær skuggaboð
Kemur á staðinn ef þörf er á
Vetvangi er stjórnað af viðbragðsaðilum
Kallar umsjónarmenn til aðstoðar eftir þörfum
Verkefnastjóri öryggismála
Fær skuggaboð og skráir þau
Safnar gögnum og stýrir endurmati
Samskipti
Skuggaboð eru SMS skilaboð sem neyðarlinan sendir þegar sjúkra- eða slökkvilið eru kölluð á háskólasvæðið. Nokkrir starfsmenn fá boðin auk öryggisfyrirtækis.
Það er ekki ástæða til að senda út tilkynningar nema atburðurinn sé þeim mun stærri og hafi áhrif á starfsemi í byggingu. Gæta skal að persónuvernd.
Ef um vinnuslys er að ræða skráir hinn slasaði eða starfsfólk við hans deild slysið í slysaskráningarform á öryggisvef.
Verkefnastjóri öryggismála skráir skuggaboð og tengir þau við slysaskráningu ef þess gerist þörf