Rýming

Atburður

Ef hættuástand skapast í byggingu virkjast viðeigandi aðgerðaáætlun.

Rýming hefst þegar brunaviðvörunarbjöllur hljóma.

Almenn rýming

  • Fólk stendur upp frá vinnu sinni og klæðist yfirhöfn.
  • Stúdentar taka dótið sitt og klæðast yfirhöfn.
  • Allir ganga stystu, greiðfærustu leið út og aðstoða aðra ef þörf er á.
  • Safnast saman á söfnunarstað.

Hreyfihamlaðir

  • Lyftur stöðvast þegar brunaviðvörunarkerfi ræsist.
  • Unnið er að skilgreiningu safnsvæða fyrir hreyfihamlaða (óklárað verkefni).
  • Stigagangar eru almennt öruggasti biðstaðurinn þar til slökkvilið kemur.
  • Mikilvægt er að nærstaddir aðstoði hreyfihamlaða og tilkynni hvar þeir eru.
  • Rýmingarfulltrúar og viðbragðsaðilar bregðast við beiðnum um aðstoð.

Hlutverk

Umsjónarmaður

  • Kemur á staðinn og leitar uppruna hættu.
  • Hringir í aðra umsjónarmenn ef þörf er á.
  • Hringir í neyðarlínu (112) ef nauðsyn krefur.
  • Slekkur á brunaboðum þegar hætta er liðin hjá.

Allt starfsfólk

  • Aðstoðar við rýmingu.
  • Sér um eigið svæði.
  • Beinir fólki að söfnunarstað.

Kennarar í kennslustund

  • Stýra rýmingu kennslustofunnar.
  • Leiða stúdenta að söfnunarstað.
  • Gera manntal á söfnunarstað.

Samskipti

  • Brunaviðvörunarbjöllur = rýming.
  • Þögn bjalla = hætta liðin hjá.
  • A.m.k. ein rýmingaræfing á ári:
    • Upplýst æfing: tilkynnt öllum með tölvupósti.
    • Hálfupplýst æfing: tilkynnt rýmingarfulltrúum.
    • Óupplýst æfing: framkvæmd án fyrirvara.
  • Ef hættuástand dregst á langinn er fólki vísað í aðrar byggingar.
  • Starfsfólk og stúdentar skulu kynnast útgönguleiðum byggingarinnar.
  • Önnur samskipti samkvæmt viðbragðsáætlun.