Varnaðarsetningar
Athugið að á nokkrum stöðum er ætlast til að settar séu inn sértækar upplysingar fyrir tiltekið efni.
Almennar varnaðarsetningar
- P101 Ef leita þarf læknis skal hafa ílát eða merkimiða tiltæk.
 - P102 Geymist þar sem börn ná ekki til.
 - P103 Lesið merkimiðann fyrir notkun.
 
Varnaðarsetningar — forvarnir
- P201 Aflið sérstakra leiðbeininga fyrir notkun.
 - P202 Nauðsynlegt er að lesa og skilja allar viðvaranir áður en efnið er notað.
 - P210 Haldið frá hitagjöfum, heitum flötum, neistagjöfum, opnum eldi og öðrum íkveikivöldum. Reykingar bannaðar.
 - P211 Má ekki úða á opinn eld eða annan íkveikjuvald.
 - P220 Má ekki nota eða geyma í námunda við fatnað/.../brennanleg efni.
 - P221 Gætið þess að blanda efninu ekki saman við brennanleg efni/...
 - P222 Má ekki komast í snertingu við andrúmsloft.
 - P223 Má ekki komast í snertingu við vatn.
 - P230 Haldið röku með...
 - P231 Meðhöndlið undir óhvarfgjarnri lofttegund.
 - P232 Verjið gegn raka.
 - P233 Ílát skal vera vel lukt.
 - P234 Má aðeins geyma í upprunalegu íláti.
 - P235 Geymist á köldum stað.
 - P240 Jarðtengið/spennujafnið ílát og viðtökubúnað.
 - P241 Notið sprengiheld rafföng/loftræstibúnað/lýsingu/...
 - P242 Notið ekki verkfæri sem mynda neista.
 - P243 Gerið varúðarráðstafanir gegn stöðurafmagni.
 - P244 Gætið þess að ekki sé feiti og olía á lokum og tengingum.
 - P250 Má ekki verða fyrir hnjaski/höggi/..../núningi.
 - P251 Ekki má gata eða brenna brúsa jafnvel þótt þeir séu tómir.
 - P260 Andið ekki að ykkur ryki/reyk/lofttegund/úða/gufu/ýringi.
 - P261 Gætið þess að anda ekki inn ryki/reyk/lofttegund/úða/gufu/ýringi.
 - P262 Má ekki koma í augu eða á húð eða föt.
 - P263 Forðist alla snertingu við efnið meðan á meðgöngu og brjóstagjöf stendur.
 - P264 Þvoið...vandlega eftir meðhöndlun.
 - P270 Neytið ekki matar, drykkjar eða tóbaks við notkun þessarar vöru.
 - P271 Notið eingöngu utandyra eða í vel loftræstu rými.
 - P272 Ekki skal farið með vinnuföt af vinnustað hafi þau óhreinkast af efninu.
 - P273 Forðist losun út í umhverfið.
 - P280 Notið hlífðarhanska/hlífðarfatnað/augnhlífar/andlitshlífar.
 - P281 Notið tilskildar persónuhlífar.
 - P282 Klæðist kuldaeinangrandi hönskum/andlitshlífum/augnhlífum.
 - P283 Klæðist brunaþolnum/eldþolnum/eldtefjandi fatnaði.
 - P284 Notið öndunarhlífar [ef loftræsting er ófullnægjandi].
 - P285 Notið öndunarhlífar ef loftræsting er ófullnægjandi.
 - P231 + P232 Meðhöndlið undir óhvarfgjarnri lofttegund. Verjið gegn raka.
 - P235 + P410 Geymist á köldum stað. Hlífið við sólarljósi.
 
Varnaðarsetningar — viðbrögð
- P301 EFTIR INNTÖKU:
 - P302 BERIST EFNIÐ Á HÚÐ:
 - P303 BERIST EFNIÐ Á HÚÐ (eða í hár):
 - P304 EFTIR INNÖNDUN:
 - P305 BERIST EFNIÐ Í AUGU:
 - P306 EF EFNIÐ FER Á FÖT:
 - P307 EF um váhrif er að ræða:
 - P308 EF um váhrif eða hugsanleg váhrif er að ræða:
 - P309 EF um váhrif er að ræða eða ef lasleika verður vart:
 - P310 Hringið umsvifalaust í EITRUNARMIÐSTÖÐ/lækni/...
 - P311 Hringið í EITRUNARMIÐSTÖÐ/lækni/...
 - P312 Hringið í EITRUNARMIÐSTÖÐ/lækni/... ef lasleika verður vart.
 - P313 Leitið læknis.
 - P314 Leitið læknis ef lasleika verður vart.
 - P315 Leitið umsvifalaust læknis.
 - P320 Brýnt er að fá sérstaka meðferð (sjá .... á þessum merkimiða).
 - P321 Sérstök meðferð (sjá .... á þessum merkimiða).
 - P322 Sérstakar ráðstafanir (sjá .... á þessum merkimiða).
 - P330 Skolið munninn.
 - P331 EKKI framkalla uppköst.
 - P332 Ef efnið ertir húð:
 - P333 Ef efnið ertir húð eða útbrot koma fram:
 - P334 Sökkvið í kalt vatn/vefjið með blautu sárabindi.
 - P335 Dustið lausar agnir af húðinni.
 - P336 Vermið kalna líkamshluta með volgu vatni. Ekki nudda skaddaða svæðið.
 - P337 Ef augnerting er viðvarandi:
 - P338 Fjarlægið snertilinsur ef það er auðvelt. Skolið áfram.
 - P340 Flytjið viðkomandi í ferskt loft og hafið hann í stellingu sem léttir öndun.
 - P341 Ef viðkomandi á erfitt með öndun skal flytja hann í ferskt loft og láta hann hvílast í stellingu sem léttir öndun.
 - P342 Ef vart verður einkenna frá öndunarvegi:
 - P350 Þvoið varlega með mikilli sápu og vatni.
 - P351 Skolið varlega með vatni í nokkrar mínútur.
 - P352 Þvoið með miklu vatni/...
 - P353 Skolið húðina með vatni/Farið í sturtu.
 - P360 Föt og húð, sem óhreinkast af efninu, skal skola strax með miklu vatni áður en farið er úr fötunum.
 - P361 Farið strax úr fötum sem óhreinkast af efninu.
 - P362 Farið úr fötum sem óhreinkast af efninu.
 - P363 Þvoið föt, sem óhreinkast af efninu, fyrir næstu notkun.
 - P364 Og þvoið fyrir næstu notkun.
 - P370 Ef eldur kemur upp:
 - P371 Þegar um mikinn eld og mikið efnismagn er að ræða:
 - P372 Sprengihætta ef eldur kemur upp.
 - P373 EKKI reyna að slökkva eld ef hann kemst að sprengifimum efnum.
 - P374 Beitið eðlilegum varúðarráðstöfunum við slökkvistörf og verið í hæfilegri fjarlægð frá eldinum.
 - P375 Verið í fjarlægð frá eldinum við slökkvistörf vegna sprengihættu.
 - P376 Stöðvið leka ef það er óhætt.
 - P377 Eldur í lekandi gasi: Reynið ekki að slökkva eldinn nema hægt sé að stöðva lekann á öruggan máta.
 - P378 Notið ... til að slökkva eldinn.
 - P380 Rýmið svæðið.
 - P381 Fjarlægið alla íkveikjuvalda ef það er óhætt.
 - P390 Sogið upp allt sem hellist niður til að afstýra eignatjóni.
 - P391 Safnið upp því sem hellist niður.
 - P301 + P310 EFTIR INNTÖKU: Hringið umsvifalaust í EITRUNARMIÐSTÖÐ/lækni/...
 - P301 + P312 EFTIR INNTÖKU: Hringið í EITRUNARMIÐSTÖÐ/lækni/... ef lasleika verður vart.
 - P301 + P330 + P331 EFTIR INNTÖKU: Skolið munninn. EKKI framkalla uppköst.
 - P302 + P334 BERIST EFNIÐ Á HÚÐ: Sökkvið í kalt vatn/vefjið með blautu sárabindi.
 - P302 + P350 BERIST EFNIÐ Á HÚÐ: Þvoið varlega með mikilli sápu og vatni.
 - P302 + P352 BERIST EFNIÐ Á HÚÐ: Þvoið með miklu vatni/...
 - P303 + P361 + P353 BERIST EFNIÐ Á HÚÐ (eða í hár): Farið strax úr fötum sem óhreinkast af efninu. Skolið húðina með vatni/Farið í sturtu.
 - P304 + P340 EFTIR INNÖNDUN: Flytjið viðkomandi í ferskt loft og hafið hann í stellingu sem léttir öndun.
 - P304 + P341 EFTIR INNÖNDUN: Ef viðkomandi á erfitt með öndun skal flytja hann í ferskt loft og láta hann hvílast í stellingu sem léttir öndun.
 - P305 + P351 + P338 BERIST EFNIÐ Í AUGU: Skolið varlega með vatni í nokkrar mínútur. Fjarlægið snertilinsur ef það er auðvelt. Skolið áfram.
 - P306 + P360 EF EFNIÐ FER Á FÖT: Föt og húð, sem óhreinkast af efninu, skal skola strax með miklu vatni áður en farið er úr fötunum.
 - P307 + P311 EF um váhrif er að ræða: Hringið í EITRUNARMIÐSTÖÐ eða lækni.
 - P308 + P311 EF um váhrif eða hugsanleg váhrif er að ræða: Hringið í EITRUNARMIÐSTÖÐ/lækni/...
 - P308 + P313 EF um váhrif eða hugsanleg váhrif er að ræða: Leitið læknis.
 - P309 + P311 EF um váhrif er að ræða eða ef lasleika verður vart: Hringið í EITRUNARMIÐSTÖÐ eða lækni.
 - P332 + P313 Ef efnið ertir húð: Leitið læknis.
 - P333 + P313 Ef efnið ertir húð eða útbrot koma fram: Leitið læknis.
 - P335 + P334 Dustið lausar agnir af húðinni. Sökkvið í kalt vatn/vefjið með blautu sárabindi.
 - P337 + P313 Ef augnerting er viðvarandi: Leitið læknis.
 - P342 + P311 Ef vart verður einkenna frá öndunarvegi: Hringið í EITRUNARMIÐSTÖÐ/lækni/...
 - P361 + P364 Farið þegar úr fötum, sem óhreinkast af efninu, og þvoið fyrir næstu notkun.
 - P362 + P364 Farið úr fötum, sem óhreinkast af efninu, og þvoið fyrir næstu notkun.
 - P370 + P376 Ef eldur kemur upp: Stöðvið leka ef það er óhætt.
 - P370 + P378 Ef eldur kemur upp: Notið ... til að slökkva eldinn.
 - P370 + P380 Ef eldur kemur upp: Rýmið svæðið.
 - P370 + P380 + P375 Ef eldur kemur upp: Rýmið svæðið. Verið í fjarlægð frá eldinum við slökkvistörf vegna sprengihættu.
 - P371 + P380 + P375 Þegar um mikinn eld og mikið efnismagn er að ræða: Rýmið svæðið. Verið í fjarlægð frá eldinum við slökkvistörf vegna sprengihættu.
 
Varnaðarsetningar — geymsla
- P401 Geymist ...
 - P402 Geymist á þurrum stað.
 - P403 Geymist á vel loftræstum stað.
 - P404 Geymist í lokuðu íláti.
 - P405 Geymist á læstum stað.
 - P406 Geymist í tæringarþolnu/...íláti með tæringarþolnu innra lagi.
 - P407 Hafið loftbil á milli stafla/vörubretta.
 - P410 Hlífið við sólarljósi.
 - P411 Geymist við hitastig sem er ekki hærra en … °C.
 - P412 Hlífið við hærri hita en 50 °C.
 - P413 Ef búlkavara vegur meira en ... kg skal ekki geyma hana í hærri hita en… °C.
 - P420 Má ekki geyma hjá öðru efni.
 - P422 Geymið innihald undir ...
 - P402 + P404 Geymist á þurrum stað. Geymist í lokuðu íláti.
 - P403 + P233 Geymist á vel loftræstum stað. Umbúðir skulu vera vel luktar.
 - P403 + P235 Geymist á vel-loftræstum stað. Geymist á köldum stað.
 - P410 + P403 Hlífið við sólarljósi. Geymist á vel loftræstum stað.
 - P410 + P412 Hlífið við sólarljósi. Hlífið við hærri hita en 50 °C.
 - P411 + P235 Geymist á köldum stað við hitastig sem er ekki hærra en … °C.
 
Varnaðarsetningar — förgun
- P501 Fargið innihaldi/íláti hjá ...
 - P502 Leitið til framleiðanda/ birgis um upplýsingar varðandi endurnýtingu/ endurvinnslu