Atburður
- Mengandi efni lekur út í umhverfið:
- Efni sem valda umhverfisspjöllum.
- Efni sem valda óþef í nágrenni háskólasvæðisins.
- Efni sem valda óþef og óþægindum í byggingu.
Mat á aðstæðum
- Magn lekans – 10, 100 eða 1000 lítrar?
- Hætta fyrir þá sem koma að?
- Hvaða varnarbúnaður er tiltækur?
Fyrstu viðbrögð
- Rýma herbergi og lofta út?
- Rýma bygginguna (samkvæmt sérstakri aðgerðaáætlun)?
- Stöðva leka.
- Tilkynna til neyðarlínu.
- Kalla út ábyrgðarmenn húss eða rannsóknarrýmis.
Mismunandi stig viðbragða
- Smávægilegur leki sem þarf að hreinsa upp.
- Efnasprenging sem krefst aðstoðar viðbragðsaðila.
- Ef rýma þarf byggingu er kveikt á brunaviðvörunarkerfi.
Hlutverk
Sá sem fyrst verður var við mengun
- Getur verið starfsmaður HÍ eða öryggisfyrirtækis.
- Hringir í umsjónarmann byggingar eða öryggisfyrirtæki.
- Hringir í neyðarlínu.
- Stýrir aðgerðum þar til fyrsti stjórnandi kemur á staðinn.
Umsjónarmaður / starfsmaður öryggisfyrirtækis
- Á dagvinnutíma: umsjónarmaður – utan dagvinnutíma: öryggisfyrirtæki.
- Kemur á staðinn og kannar aðstæður.
- Ræsir deildarstjóra reksturs fasteigna.
- Tekur fyrstu skref viðbragðs og hringir út deildarstjóra.
- Kallar út lið eftir þörfum.
- Stýrir aðgerðum í samráði við deildarstjóra.
Deildarstjóri
- Deildarstjóri fasteignaumsjónar eða bygginga- og tæknideildar.
- Kemur á staðinn ef þörf er á.
- Kallar út umsjónarmenn, iðnaðarmenn og aðra aðstoð eftir þörfum.
- Kallar út ábyrgðarmenn byggingar/rýma.
- Hringir í sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs og gefur skýrslu.
- Gerir atburðinn upp ásamt verkefnastjóra öryggismála.
Deildarstjóri reksturs fasteigna
- Staðgengill: verkefnastjóri öryggismála.
- Er ekki á staðnum.
- Í sambandi við stjórnendur á vettvangi og styður þá:
- Afla upplýsinga.
- Senda tölvupósta.
- Sinna úthringingum.
Ábyrgðarmenn byggingar/rýma
- Koma á staðinn til aðstoðar.
- Miðla þekkingu á húsakynnum, efnum og tækjum til viðbragðsaðila.
- Upplýsingar um ábyrgðarmenn eru á öryggisvef.
Sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs
- Er upplýstur um málið.
- Upplýsir rektor.
- Ákvarðar framhald eftir atvikum.
Verkefnastjóri öryggismála
- Heldur boðunarlista við.
- Safnar gögnum og stýrir endurmati.
Samskipti
Mikilvægt er að miðla upplýsingum til starfsmanna um atburði og viðbrögð. Það dregur úr óvissu og sögusögnum.
Samskipti innan stofnunar
- Samstilling aðgerða: sími og tölvupóstur.
- Flæði upplýsinga: deildarstjóri reksturs fasteigna sendir fyrstu skilaboð til neyðarstjórnar.
- Upplýsingar í fyrstu tilkynningum og fjölmiðlatilkynningum byggja á þessum gögnum.
- Þar með er viðbragðsáætlun virkjuð.
Samskipti utan stofnunar
- Viðbragðsaðilar: stjórnendur á vettvangi og neyðarstjórn.
- Fjölmiðlar: samskipti í höndum neyðarstjórnar.
- Þolendur/slasaðir/aðstandendur: samskipti samkvæmt leiðbeiningum lögreglu/viðbragðsaðila.