Fyrstu viðbrögð við jarðskjálfta

Við jarðskjálfta getur verið hættulegt að hlaupa út úr byggingu.

Vertu kyrr á öruggum stað, t.d.

  • Farðu í opnar dyr, krjúptu þar og skýldu höfðinu
  • Farðu út í horn burðarveggja, krjúptu þar og haltu þér ef það er hægt
  • Farðu undir borð, skýldu þér og haltu í borðfót

Varastu hluti sem geta hreyfst úr stað eða fallið úr hillum.

Ekki nota lyftu!

Sá sem lendir undir fargi skal:

  • Verja vit sín fyrir ryki
  • Varast að kveikja eld
  • Láta vita af sé með því að banka með reglubundnu millibili í málm

Þegar þú ert kominn á góðan stað, haltu þig þar. Ekki hlaupa um.

Mikilvægast af öllu er að halda ró sinni