Fyrstu viðbrögð við slysi

Taktu þér augnablik til að meta stöðuna. Tryggðu öryggi og reyndu að koma i veg fyrir frekara slys ef þess er nokkur kostur. Farðu þér samt ekki að voða.

Ekki færa alvarlega slasað fólk úr stað nema hætta sé á að það slasist meira.

Kallaðu á aðstoð nærstaddra.

Ef þörf er á utanaðkomandi aðstoð skaltu hringja strax í 1-1-2

Ef sjúkrabíll er á leiðinni verður að senda einhvern út til að taka á móti honum og vísa sjúkraflutningamönnum leiðina.

Allir ætti að taka námskeið í skyndihjálp

Kynntu þér skyndihjálpar app Rauða krossins

Veittu fyrstu hjálp og hlúðu að hinum slasaða þar til hjálp berst.

Það er mikilvægt að öll slys og óhöpp séu tilkynnt til öryggisnefndar og mannauðssviðs. Þegar rafræna skráningaformið er fyllt út fer tilkynning til öryggisnefndar og mannauðssviðs. Öryggisnefnd rannsakar orsakir slyssins og gerir tillögu um úrbætur og mannauðssvið sér um samskipti við vinnueftirlit og sjúkratryggingar. Fyllið út formið hér