Atburður
- Ofbeldisverknaður er framinn á háskólasvæði:
- Árás eða átök þar sem einn eða fleiri gerendur ráðast gegn þolanda/þolendum.
- Hótanir, sjálfsvígshótanir, ógnanir, árás eða gíslataka.
- Atvik sem krefjast tafarlausra viðbragða lögreglu.
- Neyðarlína sendir ekki skuggaboð.
Mat á aðstæðum
- Telur fólk sér stafa ógn af ofbeldismanni eða ofbeldismönnum?
Fyrstu viðbrögð
- Hringja strax í neyðarlínu (112).
Mismunandi stig viðbragða
- Atburðir gerast oft mjög hratt – ekki er víst að tími gefist til úthringinga.
- Viðbúnaður lögreglu getur verið mismunandi:
- Sérsveit Ríkislögreglustjóra kemur á vettvang.
Hlutverk
Sá sem verður vitni að ofbeldi
- Hringir í neyðarlínu/lögreglu.
- Sendir skilaboð með Hjarta Uglunnar ef hann hefur aðgang að því.
- Metur aðstæður og reynir að stöðva ofbeldið ef mögulegt er án áhættu.
Umsjónarmaður
- Er oft nærstaddur.
- Hringir í neyðarlínu.
- Aðstoðar lögreglu og sjúkralið eftir föngum.
- Gefur deildarstjóra fasteignaumsjónar skýrslu.
Rekstrarstjóri fasteignaumsjónar
- Lögregla stjórnar aðgerðum.
- Aðstoðar lögreglu eftir föngum.
Verkefnastjóri öryggismála
- Heldur boðunarlista við.
- Safnar gögnum, gerir skýrslu og stýrir endurmati.
Samskipti
Mikilvægt er að miðla upplýsingum til starfsfólks og nemenda. Það upplýsir um atvik og dregur úr líkum á sögusögnum. Gæta þarf persónuverndar í öllum samskiptum.
Samskipti innan stofnunar
- Samstilling aðgerða: sími og tölvupóstur.
- Flæði upplýsinga:
- Umsjónarmaður gefur deildarstjóra fasteignaumsjónar munnlega skýrslu.
- Deildarstjóri fasteignaumsjónar:
- Sendir tölvupóst á póstlista neyðarstjórnar.
- Upplýsingar í fyrstu tilkynningum byggja á þessum gögnum.
- Upplýsingar í fjölmiðlatilkynningu byggja á þessum gögnum.
- Viðbragðsáætlun er virkjuð.
Samskipti utan stofnunar
- Viðbragðsaðilar: stjórnendur á vettvangi.
- Fjölmiðlar: rektor eða fjölmiðlafulltrúi sér um samskipti.
- Þolendur, slasaðir og aðstandendur: samkvæmt leiðbeiningum lögreglu/viðbragðsaðila.