Atburður
- Ofsaveður veldur skemmdum á húsnæði.
- Hlutir fjúka og geta valdið slysum og/eða tjóni.
Mat á aðstæðum
- Viðvaranir Veðurstofu Íslands.
- Veðurhæð og aðstæður á vettvangi.
Fyrstu viðbrögð
- Festa lausamuni svo þeir fjúki ekki.
- Negla fyrir glugga ef rúður brotna.
- Negla niður þakplötur.
Stig viðbragða
- Innanhússviðbragð.
- Björgunarsveitir kallaðar til aðstoðar.
Hlutverk
0. Fyrsti á staðinn
- Sá sem fyrstur verður áskynja um að bregðast þurfi við vegna veðurhamfarar.
- Getur verið starfsmaður HÍ eða starfsmaður öryggisfyrirtækis.
- Hringir í neyðarlínu (112).
- Tekur fyrstu skref viðbragðs og hringir út fyrsta stjórnanda.
- Stýrir aðgerðum þar til fyrsti stjórnandi kemur á staðinn.
1. Fyrsti stjórnandi – Byggingastjóri
- Kemur á staðinn og stýrir aðgerðum. Mikilvægt er að tilgreina staðgengla.
- Ræsir annan stjórnanda.
- Hringir í neyðarlínu og biður um aðstoð ef þörf krefur.
- Kallar út lið eftir þörfum og í samráði við annan stjórnanda.
- Stýrir aðgerðum í samráði við annan og þriðja stjórnanda og viðbragðsaðila.
2. Annar stjórnandi – Deildarstjóri í byggingadeild
- Er ekki á vettvangi.
- Er samskiptastjóri aðgerða:
- Sendir tilkynningar til neyðarstjórnar í tölvupósti (samkvæmt viðbragðsáætlun).
- Hringir í hagsmunaaðila innan stofnunar (ábyrgðarmenn húsa/rýma, ábyrgðarmenn tækjabúnaðar).
- Sendir áfram upplýsingar til neyðarstjórnar eftir því sem þær berast frá vettvangi.
- Heldur loggskrá um símtöl og ákvarðanir.
- Hringir út liðsauka (starfsmenn, verktaka o.fl.) í samráði við fyrsta stjórnanda.
- Ræsir þriðja stjórnanda í samráði við fyrsta stjórnanda.
3. Þriðji stjórnandi
- Að jafnaði sviðsstjóri eða sviðsforseti.
- Hringir í rektor og upplýsir um málið:
- Viðbragðsáætlun tekur við.
- Rektor ákveður hvort neyðarstjórn skuli kölluð saman.
- Rektor ákveður hvort senda skuli tilkynningu til fjölmiðla.
- Ef hann kemur á staðinn, vinnur hann í samstarfi við fyrsta stjórnanda.
Verkefnastjóri öryggismála
- Heldur boðunarlista við.
- Safnar gögnum og stýrir endurmati.
Samskipti
Mikilvægt er að miðla upplýsingum til starfsmanna til að upplýsa um áhrif á starfsemi og draga úr sögusögnum. Gæta skal persónuverndar.
Samskipti innan stofnunar
- Samstilling aðgerða: sími og tölvupóstur.
- Flæði upplýsinga: annar stjórnandi sendir fyrstu skilaboð til neyðarstjórnar:
- Sent á póstlista neyðarstjórnar.
- Fyrstu tilkynningar byggja á þessum upplýsingum.
- Fjölmiðlatilkynningar byggja á þessum upplýsingum.
- Viðbragðsáætlun telst virkjuð.
Samskipti utan stofnunar
- Viðbragðsaðilar: stjórnendur á vettvangi.
- Fjölmiðlar: fyrsta tilkynning send og tengiliður útnefndur.
- Þolendur/slasaðir/aðstandendur: samskipti samkvæmt leiðbeiningum lögreglu/viðbragðsaðila.