Láttu alla vita Ýttu á næsta handboða og láttu fólk í kringum þig vita. Hringdu strax í 1-1-2 Reyndu að slökkva eldinn Reyndu að slökkva eldinn með tiltækum búnaði. Handslökkvitæki, eldvarnateppi og brunaslöngur eru skammt undan. Kynntu þér staðsetningu þeirra. Farðu þér samt ekki að voða. Forðaðu þér Farðu út um næstu öruggu flóttaleið og á söfnunarsvæðið. Lokaðu dyrum á eftir þér ef tími gefst til. Ekki eyða tíma í að taka persónulegar eigur Ekki nota lyftur Ekki fara aftur inn í bygginguna fyrr en lýst er yfir að það sé óhætt.