Kynferðisleg áreitni
Kynferðisleg áreitni er hverskonar óumbeðin og óvelkomin kynferðisleg háttsemi sem veldur auðmýkingu, blygðun og/eða ótta þess sem fyrir verður
Sérstaklega er mikilvægt að huga að þessu í samskiptum þar sem valdamunur er tilfinnanlegur, til dæmis milli kennara og nemanda eða stjórnanda og starfsmanns.
- Kynferðislegar athugasemdir eða brandarar
- Einhver sem sýnir myndir eða teikningar sem hafa kynferðislega skýrskotun
- Einhver sendir tölvupósta, textaboð eða þessháttar, með kynferðislegu innihaldi
- Önnur óviðeigandi háttsemi, þar á meðal kynferðislegir tilburðir eða snerting
- Hverskonar kynferðisleg misnotkun
- Segðu einhverjum sem þú treystir frá því hvað er að gerast.
- Þú getur leitað til mannauðsstjóra þíns sviðs eða mannauðssviðs háskólans
- Skrifaðu niður hvar og hvenær avikið varð og hvernig þú brást við
- Sem starfsmaður ættir þú líka að tilkynna ef þú verður vitni að áreitni
Starfsfólk og stúdentar geta tilkynnt kynbundna og kynferðislega áreitni í uglu