Tilkynna slys, næstum slys eða atvik

Ef sprengjuhótun berst skal tilkynna það til lögreglu í gegnum neyðarnúmer 112

Sprengjuhótunum er alltaf tekið alvarlega af lögreglu og hvert tilvik metið óháð öðrum álíka. Sprengjuhótanir geta borist á ýmsan hátt s.s. með bréfpósti, símtali, tölvupósti o.s.frv. Oftast er tilgangur þeirra að valda ótta eða trufla starfsemi. Forðast skal í flestum tilvikum fjölmiðlaumfjallanir um sprengjuhótanir þar sem slíkt þjónar oft aðeins tilgangi þess sem hótunina ber upp og gæti kallað fram eftirhermur.

Leiðbeiningar frá lögreglu