Viðbrögð við slysum á rannsóknastofum
- Engan asa! Ekki rjúka til að hreinsa upp stórhættuleg eða jafnvel baneitruð efni í einhverjum flýti. Staldraðu við eitt augnablik til að meta aðstæður.
- Fyrst er að meta stærð slyssins eða lekans og vara starfsfólk á rannsóknastofunni við. Hringja í 1-1-2 ef þess gerist þörf.
- Á landspítalanum er starfrækt eiturefnamiðstöð sem veitir ráðleggingar vegna eiturefnamengunar, síminn þar er: 543 2222
- Næst er að stöðva útbreiðslu lekans eins og kostur er og forða þeim sem hafa slasast ef einhverjir eru og veita þeim aðstoð og skyndihjálp eftir þörfum.
- Gætið þess að það er ekki víst að það sé gott að opna glugga þar sem það getur breytt undirþrýstingi á rannsóknastofunni í yfirþrýsting sem getur dreift mengun meira en annars.
- Varist það að sumar gastegundir eru lyktarlausar, t.d. kolmónoxíð, og sum efni deyfa lyktarskyn, t.d. vetnisperoxíð.
Kallaðu á aðstoð nærstaddra.
Almennt er mælt með því að skola strax með vatni ef maður fær efni á húð eða í augu. Þess má þó geta að efni hafa ekki öll jafn slæm áhrif og það er nauðsynlegt að miða skolunina við það hve hættulegt efnið er:
- 5 mínútur ef efnið er ertandi
- 15-20 mínútur ef efnið er mjög ertandi eða getur valdið eituráhrifum í gegnum húð
- 30 mínútur ef efnið er ætandi
- 60 mínútur ef efnið er sterkur basi, t.d. natrium-, kalium- eða calsíumhýdroxíð
Þessar tölur eru aðeins nefndar til viðmiðunar en miklu skiptir að byrja strax að skola.
Ef þú fær efni í auga skiptir miklu máli að bregðast skjótt við. Það er augnskol áfast við a.m.k. einn krana í hverri rannsóknastofu innan háskólans.
- Byrjaðu strax að skola
- Fjarlægðu augnlinsur ef þú notar þannig og haltu svo áfram að skola.
- Notaðu sömu viðmið um tímalengd eins og hér fyrir ofan.
- Ef þú þarft að fara á bráðamóttökuna skaltu taka með þér flösku af augnskoli til að nota á leiðinni.
Ef þörf er á utanaðkomandi aðstoð skaltu hringja strax í 1-1-2
Ef sjúkrabíll er á leiðinni verður að senda einhvern út til að taka á móti honum og vísa sjúkraflutningamönnum leiðina.
Ekki gleyma að tilkynna slysið!
Fyrir smávægileg efnaslys:
Svona ferð þú að:
- Efst í kassanum er blað með upplýsingum um hvað er í kassanum og einfaldar leiðbeiningar.
- Áður en þú byrjar að hreinsa upp efnaleka skaltu biðja alla sem eru í herberginu að fara fram á meðan, það er þeim fyrir bestu.
- Byrjaðu á að verja sjálfan þig, setti á þig grímu, gleraugu og hanska, að minnsta kosti.
- Notaðu efnapylsuna til að takmarka útbreiðslu lekans, ef hann stefnir á niðurfall t.d. verður að stöðva hann. Einnig má nota hana til að sópa saman glerbrotum og slettum.
- Sópið upp glerbrotum og setjið í plastkassann.
- Dreifið uppsogsefni yfir og látið það sjúga upp vökvann, sópið því síðan upp og setjið í plastpoka.
- Notið þurrkur til að klára að þurrka upp vökva, setjið allt saman í plastpoka.
- Safnið öll saman í plastkassann, merkið sem spilliefni, og glerbrot ef það á við, og setjið á spilliefnastað byggingarinnar.
- Hafið samband við öryggisnefnd HÍ á oryggi@hi.is til að fá fyllt á kassann.
Ekki gleyma að tilkynna slysið!
Ef unnið er með vefjasýni úr mönnum eða dýrum.
- Kreistið blóð úr sárinu eins og hægt er.
- Þvoið sárið undir rennandi vatni og þerrið.
- Sprittið sárið
- Farið á bráðamóttöku, munið að taka með allar upplýsingar um sýnið.
Viðbragð bráðamóttöku er eftirfarandi:
- Tekið er blóðsýni
- Sýnið er prófað fyrir HIV, Lifrarbólgu B og Lifrarbólgu C að minnsta kosti, fleiri próf eru gerð ef ástæða þykir til.
- Ef um áhættustungu er að ræða eða uppruni nálar/áhalds er óþekktur þarf að fara í framhaldsblóðprufur eftir 6 vikur, 3 mánuði og 6 mánuði.
Ekki gleyma að tilkynna slysið!