Report accident, incident, violence!

Öryggisnefnd Háskóla Íslands boðar til öryggisþings 17. nóvember 2026 í Eddu, stofu E-103.

Á öryggisþingi er fjallað um öryggis-, heilsu- og vinnuverndarmál. Fyrirlesarar koma bæði úr háskóla- og atvinnulífi og þar gefst tækifæri til að styrkja samstöðu og samvinnu í þessum málaflokki og um leið bæta öryggisbrag á vinnustaðnum.

Umræðuefni á öryggisþingi taka mið af umræðum innan skólans og í samfélaginu og að þessu sinni verður fjallað um öryggismenningu frá ýmsum hliðum.

Drög að dagskrá:

13:00 Setning og fundarstjórn - Rögnvaldur Sæmundsson, aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika
13:10 Fréttir af starfi öryggisnefnda - Benjamín Ragnar Sveinbjörnsson, formaður öryggisnefndar HÍ
13:30 Hvað getum við gert sjálf í okkar öryggismálum?- Sveinn Hákon Harðarson, formaður öryggisnefndar HVS
13:50 Hreyfi og stoðkerfi í starfsumhverfiskönnun - Jónína Helga Ólafsdóttir, formaður öryggisnefndar sameiginlegrar stjórnsýslu
14:25 Kaffihlé
14:40 Öryggismenning og öryggishegðun - Vilborg Magnúsdóttir, formaður öryggishóps Stjórnvísis
15:10 Upplýsingaöryggi og Háskóli Íslands - Oddur Hafsteinssonn, upplýsingaöryggisstjóri HÍ
15:30 Slit

Vinsamlegast skráið þátttöku hér